    <language>is</language>
Félag Málmiðnaðarmanna Akureyri
Breytingar vegna leigu á orlfoshúsum VM
Við höfum gert breytingu á leigu orlofshúsa félagsmanna FMA við VM.  Þar sem núverandi  kerfi FMA liggur niðri þá þurfa félagsmenn að hafa samband við skrifstofu  FMA í síma 455-1050 til að kanna hvaða orlofshús séu laus.  Breytingin felur í sér að ef að ekki er laus orlofskostur hjá FMA þá getur afgreiðslan skoðað hvað er laust af orlofskostum hjá VM og bókað það, greiða þarf við bókun. Félagsmaður fær síðan samninginn sendan á sitt netfang.
Leigur sem FMA félagar leigja hjá VM skrást framvegis á Félag Málmiðnaðarmanna en ekki á félagsmanninn. ]]></description>
Minnum á aðalfund félagsins sem verður haldinn í dag mánudaginn 9.mars kl.17:30 í fundasal Lions á 4.hæð að Skipagötu 14
Aðalfundur félagsins verður haldinn í dag mánudaginn 9.mars kl.17:30 í fundasal Lions á 4.hæð að Skipagötu 14 Venjulega aðalfundarstörf og boðið verður upp á léttar veitingar ásamt því að Vilhjálmur vandræðaskáld mætir á svæðið og skoðar hreyfinguna út frá sinni sýn á léttan hátt. Guðfinnur framkvæmdarstjóri Samiðnar fer yfir hver raunveruleg staða sé á næstunni varðandi kjarasamninginn, en framundan er endurskoðun á ákvæði á honum. ]]></description>
Auglýst eftir fulltrúum í stjórn Birtu.
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2026 til 2028.
Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára og einn varamann (konu) til tveggja ára í stjórn sjóðsins.
Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.10) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna.]]></description>
ASÍ sakar ríkisstjórnina um yfirgang og krefst þess að ónýtt frumvarp verði dregið til baka.
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) krefst þess að frumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadótt um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnnumarkaðsúrræði verði dregið til baka. Þetta kemur fram í ítarlegri og afdráttarlausri umsögn um frumvarpið þar sem stjórnvöld er sökuð um samráðsleysi og yfirgang gagnvart launafólki.
Frumvarpið felur í sér verulegar skerðingar á réttindum launafólks við atvinnumissi og grundvallarbreytingar á stjórnsýslu kerfisins. Með breytingunum hyggjast stjórnvöld spara um sex milljarða króna á ári með því að draga úr afkomutryggingu þeirra sem missa vinnuna.
Bótatímabil stytt um heilt ár – ávinnsluréttur fjórfaldaður
Tvær veigamestu breytingarnar eru annars vegar að bótatímabil verður stytt úr 30 mánuðum í 18 mánuði, og hins vegar að ávinnslutími réttar til bóta lengist úr þremur mánuðum í 12 mánuði.
Í umsögninni segir að með þessu muni fólk sem missir vinnuna bæði eiga erfiðara með að öðlast rétt til bóta og missa rétt sinn mun fyrr en áður. ASÍ telur að slíkar breytingar muni veikja tryggingavernd verulega, sérstaklega gagnvart þeim hópum sem starfa í sveiflukenndum atvinnugreinum, ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og þeim sem eru í viðkvæmri stöðu.
Fram kemur að framlög til virkravinnumarkaðsaðgerða hér á landi séu með þeim lægstu sem þekkist í alþjóðlegum samanburði og frumvarpinu fylgi engin áform um breytingar þar á. ]]></description>
Kaffiboð fyrir eldri félagsmenn FMA og iðnfélaganna verður 19.febrúar á Hótel KEA, Múlabergi Bistro&Bar, við Hafnarstræti 89 á Akureyri.
Kaffi fyrir eldri félaga FMA verður haldið fimmtudaginn 19.febrúar kl.13:00 kaffiboðið verður á Hótel KEA, Múlabergi Bistro&Bar, við Hafnarstræti 89 á Akureyri. Kaffiboðið er sameiginlegt með eldra félagsfólki stéttarfélaganna í iðngreinum á Norðurlandi.  Hvetjum okkar félagsmenn að mæta og hitta aðra úr sinni stétt sem og aðra félaga úr iðngreinunum.]]></description>
Tilkynning - Félagavefur óvirkur
Því miður er félgavefurinn ekki lengur virkur en verið er að vinna í því að koma félaginu í nýtt orlofskerfi. Til að bóka orlofskosti félagsins þá er best að hringja á skrifstofuna í síma 455-1050. 
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
kæru félagsmenn stjórn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra Jóla og farsældar á komandi ári. ]]></description>
Hvetjum félagsmenn til að kynna sér réttindi sín á heimasíðunni en breyting varð nýverið á styrkjum. Hundahald leyft í Jaðarleiti 6.
Hvetjum félagsmenn til að kynna sér réttindi sín á heimasíðunni en breyting varð nýverið á styrkjum. Líkamsræktarstyrkurinn heitir nú Heilsustyrkur og þar fellur meira undir en áður var. Skógarböðin eru nú komin þar undir. Stjórn félagsins hefur einnig ákveðið að Jaðarleiti 6 að þar megi nú leigja og hafa með sér hund í þá íbúð. Umgengnisreglur má sjá hér.]]></description>
Iðan Fræðslusetur er í samstarfi við Símey ásamt því að Símey býður upp á fjölda af námskeiðum sem henta okkar félagsfólki.
SÍMEY fær endurnýjaða viðurkenningu sem fræðsluaðili í framhaldsfræðslu á dögunum. Með bréfi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu hefur SÍMEY fengið endurnýjaða viðurkenningu fræðsluaðila til næstu þriggja ára – til 2028. Síðast fékk SÍMEY þessa viðurkenningu á haustdögum 2022.
Á þriggja ára fresti sækja allir fræðsluaðilar sem eru með framhaldsfræðslu um viðurkenningu yfirvalda menntamála á að bjóða upp á raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf og standa fyrir hvers konar námskeiðahaldi.]]></description>
Fjöldi félagsfólks ræddi símenntun á Akureyri
Fjöldi fulltrúa úr iðngreinum á Norðurlandi, kennarar og starfsfólk fyrirtækja komu saman á opnum fundi á Akureyri í gær þar sem fjallað var um stöðu símenntunar í landshlutanum og hlutverk Iðunnar fræðsluseturs. Fundinum stýrði fjölmiðlamaðurinn Stefán Valmundarson og hófst hann á ávarpi Jóhanns Rúnars Sigurðssonar, formanns FMA. Hann ítrekaði gott samstarf á milli VMA og Iðunnar og lagði áherslu á mikilvægi þess að styrkja tengslin við Norðurland. Fagfólk í landshlutanum þyrfti að tala meira og oftar um sína hagsmuni. ]]></description>
Þú kæri félagsmaður getur haft áhrif. Opið samtal um fræðslu og framtíð iðngreina á Norðurlandi hvetjum félagsmenn á þennan fund.
Hvetjum félagsmenn á þessa kynningu og samtal en Iðan fræðslusetur verður með kynningu á starfsemi sinni í samstarfi við Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Byggiðn, Félag iðn og tæknigreina ásamt Samtökum Iðnaðarins að  Hofi menningarhúsinu miðvikudaginn 19. nóvember klukka 17:00 til 19:00. Þar verður rætt um hvernig fræðsla og símenntun geti best stutt við iðngreinar á svæðinu. Markmiðið er að heyra beint frá þeim sem starfa í greininni hvaða þjálfun og hæfni skiptir mestu máli og hvernig tryggja megi að framboð fræðslu þróist í takt við þarfir atvinnulífsins á Norðurlandi. 
Dagskráin er fjölbreytt. Jóhann Rúnar, formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri, setur fundinn og næst á svið kemur Benedikt Barðason, skólastjóri VMA. Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar, kynnir starfsemi fræðslusetursins og framtíðarsýn þess. Þá taka við erindi Ólafs Ástgeirssonar, leiðtoga bygginga- og mannvirkjagreina, Óskars Grétarssonar, leiðtoga málm- og véltæknigreina, og Sigurðar Svavars Indriðasonar, leiðtoga bílgreina hjá Iðunni. Adam Snær Atlason deilir einnig eigin reynslu áður en Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, rekur smiðshöggið.]]></description>
Grunndeildarnemar í málminum fá vinnugalla að gjöf
Grunndeildarnemar í málminum fá vinnugalla að gjöf en formaður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri hefur staðið fyrir því að iðnfélögin í málminum gefi grunndeild VMA galla í gjöf og þrjú félög standa að því og fyrir utan FMA þá er það FIT og VM sem eru gefendur að þessum göllum. Formaður fór á dögunum og afhenti þessa góðu gjöf með kveðju frá félögunum og minnti þau á að kynna sér réttindi sín og stéttarfélög en það fer eftir því hvar viðkomandi vinnur hvar hann geti valið sér félag en það félag þarf að eiga samningsréttinn að þeirri vinnu sem viðkomandi vinnur við. Formaður ræddi um mikilvægi þess að nemendur kynni sér réttindi sín. ]]></description>
Úrslit í golfmóti Samiðnar
Árlegt golfmót Samiðnar fór fram á Húsatóftavelli í Grindavík laugardaginn 23. ágúst sl. Mjög góð mæting var á mótið þrátt fyrir nokkuð krefjandi veður. Völlurinn í Grindavík var í frábæru standi, öll þjónusta á golfvellinum til fyrirmyndar og boðið upp á ljúffengan mat.
Ræst var út kl. 9:30 og leikin punktakeppni með og án forgjafar.
Eftir hringinn var boðið til veislu í golfskála Golfklúbbs Grindavíkur. Að því loknu fór fram verðlaunaafhending.]]></description>
Lokað á skrifstofunni í Fjallabyggð í dag.
Af óviðráðanlegum orsökum verður lokað á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð í dag. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér. 
Opnunartími á skrifstofu á Siglufirði í sumar
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður aðeins opið frá kl. 9-13, í sumar.
Lokað verður á skrifstofunni frá 18. ágúst til og með 5. september vegna sumarfría.]]></description>
Minnum á að orlofsuppbót greiðist 1. júní
Orlofsuppbót greiðist 1. júní, miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum miðað við 30. apríl eða eru í starfi 1. maí. Orlofsuppbót á almennum vinnumarkaði er 60 þúsund krónur árið 2025.]]></description>
Hæsta einkunn á sveinsprófi í pípulögnum
Elfar Dúi Kristjánsson á Akureyri, sem útskrifaðist úr námi í pípulögnum frá VMA í desember sl., náði bestum árangri á sveinsprófi í pípulögnum. Sveinsprófið var í janúar sl. Þetta var tilkynnt 26. mars sl. og Elfar Dúi veitti síðan viðtöku viðurkenningu fyrir þennan frábæra árangur í Menningarhúsinu Hofi 10. maí sl. þegar sextíu nýsveinar í húsasmíði, pípulögnum og vélvirkjun fengu afhent sveinsbréf sín. Meistari Elfars Dúa var Hinrik Þórðarson, sem jafnframt var kennari hans í náminu í VMA.
Elfar Dúi er heldur betur fjölhæfur. Þrátt fyrir þennan afburða árangur í pípulögnum er hann ekki starfandi pípulagningamaður, hvað svo sem síðar kann að verða. Hann er flugmaður í fullu starfi, starfaði í sjúkrafluginu hjá Mýflugi en er nú flugstjóri í áætlunarflugi Norlandair. Sem sagt fljúgandi pípulagningamaður!  ]]></description>
Menn sleppa ekki þó þeir hafi ekki tíma til að ná í sveinsbréfið sitt segir formaður FMA
Formaður fór með tvö sveinsbréf til tveggja félagsmanna sem ekki höfðu tök á að mæta í sveinsprófs afhendingu á dögunum. Þeir útskrifuðustu í Vélvirkjun og vinna báðir í Slippnum á Akureyri. Formaður gerði sér ferð og færði þeim persónulega bréfið ásamt derhúfu með logói félagsins, sem að félagsmenn geta sótt á skrifstofuna ef þeir eiga leið. Hér má einnig sjá Jóhann formann FMA afhenda formanni Byggiðnar Jóni Bjarna húfu á sveinsbréfa afhendingunni.
Hagnýt gervigreindarnámskeið í iðnaði, haldið í Símey á mánudaginn 19 maí.
Hagnýt gervigreindarnámskeið í iðnaði, verður haldið í Símey á mánudaginn 19 maí 9:00–12:00 og 13:00–16:00.Gervigreind sem meikar sens – Lærðu að láta ChatGPT vinna fyrir þig Námskeiðið er ætlað fagfólki í iðnaði og öllum þeim sem vilja: • Kynnast möguleikum gervigreindar á praktískan hátt. • Bæta verklag og skilvirkni í daglegum störfum með ChatGPT. • Undirbúa sig fyrir stafræna umbreytingu og tileinka sér hæfni í hagnýtingu gervigreindar.]]></description>
Golfmót Samiðnar 2025
Árlegt golfmót Samiðnar verður haldið 7. júní nk. á Húsatóftavelli í Grindavík (sjá auglýsingu). Skráning fer fram í golfboxinu: tengill á skráningu
Þeir sem hafa ekki aðgang að golfboxinu geta skráð sig á netfangið: helgi@gggolf.is]]></description>