Við höfum gert breytingu á leigu orlofshúsa félagsmanna FMA við VM. Þar sem núverandi kerfi FMA liggur niðri þá þurfa félagsmenn að hafa samband við skrifstofu FMA í síma 455-1050 til að kanna hvaða orlofshús séu laus. Breytingin felur í sér að ef að ekki er laus orlofskostur hjá FMA þá getur afgreiðslan skoðað hvað er laust af orlofskostum hjá VM og bókað það, greiða þarf við bókun. Félagsmaður fær síðan samninginn sendan á sitt netfang.
Leigur sem FMA félagar leigja hjá VM skrást framvegis á Félag Málmiðnaðarmanna en ekki á félagsmanninn.
Eins og félagsmenn vita flestir að þá er unnið að því að koma á nýju félagakerfi sem heitir Tótal og á meðan sú samkeyrsla fer fram á hraða snigilsins verðum við að aðstoða okkar félagsmenn á þennan hátt þar til að Tótalkerfið verður orðið virkt.
Vonum að félagsmenn sýni þessu þolinmæði.
Með bestu kveðjum
Stjórn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri